Þá er loksins kominn endir á þetta Modric rugl sem er búið að vera í gangi í næstum allt sumar. Luka Modric var í dag seldur til Real Madrid á Spáni. Kaupverðið er talið vera rúmlega 30M punda. Óskum við Modric góðs gengis hjá nýju liði. Vonandi mun Levy nýta þennan pening sem fékkst á sölunni á Modric til að styrkja liðið frekar fyrir tímabilið. En Levy og AVB verða að hafa hraðar hendur, því félagsskiptaglugginn lokar á föstudaginn á miðnætti ( 23.00 að íslenskum tíma )









