Adebayor kominn til Tottenham

0
828

Tottenham festi í dag kaup á Adebayor frá Manchester City fyrir um 5 M punda + 4 M punda fara til leikmannsins sem signing fee   =  um 9 M punda.  Adebayor var á láni hjá Tottenham allt síðasta tímabil og stóð sig mjög vel, en hann skoraði 18 mörk á síðasta tímabili ( 17 í deildinni ) og var markahæstur í liði Tottenham.  Einnig átti hann einhverjar 11 stoðsendingar á síðustu leiktíð.   Gaman að sjá að það er loksins komin uppfærsla á síðuna http://hasdaniellevyboughtastrikeryet.co.uk/  …  en þar er búið að vera eitt stórt NO í allt sumar.