Lee Young-Pyo keyptur líka

0
605

Þá hefur Tottenham tilkynnt að Suður-Kóreski bakvörðurinn Lee Young-Pyo er genginn til liðs við okkur. Lee er sókndjarfur vinstri bakvörður sem getur einnig leikið á miðjunni. Hann var í landsliði S-Kóreu sem komst í undan úrslit á HM 2002. Hann fylgdi Guus Hiddink til PSV en Guus var þjálfari S-Kóreska landsliðsins. Lee er 28 ára og hefur mikla reynslu. Hann er talinn af Jol og mörgum öðrum besti vinstri bakvörður í hollenska  boltanum í dag. Við bjóðum hann og Jenas velkomna í raðir Tottenham.