Mikið að gerast í dag

0
617

Það hefur svo sannarlega mikið gerst hjá Tottenham Hotspur í dag. Leikmenn hafa komið og farið en stærsta fréttin er án efa koma Jermaine Jenas, landsliðsmanns Englendinga, til félagsins á 7 milljónir punda. Jenas gerði 4 ára samning við félagið og sagði að hann hefði valið Spurs vegna þess að þeir eru að byggja upp góðan hóp leikmanna. Jenas er þá fimmti landsliðsmaður Englendinga í liði Spurs ásamt þeim King, Defoe, Robinson og Carrick.

„Ég tel Jermaine vera góða viðbót við hópinn okkar og hann mun án efa þróast í frábæran leikmann. Okkar stefna er að kaupa unga og efnilega leikmenn og ekki skemmir fyrir þegar þeir eru orðnir landsliðsmenn eins og Jermaine,” sagði Martin Jol um Jermaine Jenas.

Einnig var gengið frá kaupum á Lee Young-Pyo frá PSV en hann er talinn vera einn af betri vinstri bakvörðum Evrópu.