Tottenham Hotspur var rétt í þessu að landa þægilegum sigri gegn Aston Villa á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni 2-0 þar sem mörkin komu frá Caulker og Lennon. Andrea Villas Boas gerði eina breytingu frá síðasta deildarleik, Hugo Lloris spilaði sinn fyrsta deildarleik fyrir Tottenham Hotspurs annars var liðið skipað, Lloris, Walker, Caulker, Gallas, Vertonghen, Sandro, Dembele, Lennon, Bale, Dempsey og afmælisdrengurinn Defoe sem hélt uppá 30 ára afmælið sitt í dag var fremstur.
Leikmenn Tottenham byrjuðu leikinn af krafti og virtust ætla sigla Aston Villa mennina í kaf, en eftir 15 mínútna leik jafnaðist leikurinn töluvert og liðin skiptust á að sækja þrátt fyrir að skapa sér fá færi. Hugo Lloris stóð sig vel í markinu og var mjög líflegur í markinu og þurfti nokkrum sinnum að hlaupa af línunni til að grípa vel inní sóknartilraunir Villa manna. Hinumegin á vellinum sköpuðu sóknarmenn Spurs sér fá tækifæri.
Í seinnihálfleik byrjuðu Tottenham leikinn betur en á 51.mínutu voru þeir stálheppnir að lenda ekki undir, Hugo Lloris átti misheppnað kast frá marki þar sem leikmaður Aston Villa komst inní sendinguna og sendi boltann fyrir þar sem Gallas var einn í vörninni með tvo sóknarmenn Aston Villa, Benteke skallaði boltann framhjá í algeru dauðafæri (líklega í betra færi en Darren Bent var í um árið þegar HR sagði að konan hans hefði skorað úr því færi) staðan enn 0-0. Það var svo á 58.mínutu að varnamúr Aston Villa gaf sig eftir töluverða pressu frá Tottenham. Eftir hornspyrnu fékk Defoe tíma í teignum til að taka boltann niður snúa sér í teignum en skot sem var á leið fremhjá lenti í hælnum á Caulker og þaðan í markið staðan 1-0 fyrir Tottenham og fyrsta mark Caulkers í Tottenham búning staðreynd. Fljótlega eftir markið gerði Lambert breytingar á liði Aston Villa, setti tvo sóknarmenn inná þá Darren Bent og N´Zogbia fyrir Albrighton og Delph við þetta riðlasti leikur Aston Villa sem leikmenn Tottenham nýttu sér til fulls þegar boltinn barst á Lennon sem snyrtilega renndi boltanum í gegnum klof varnarmannsins og í fjærhornið óverjandi fyrir Guzan í markinu staðan 2-0 og 67 mínútur búnar. Eftir þetta var í raun aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi enda heldur einungis hversu stór hann yrði. AVB gerði síðan nokkrar breytingar á liðunu eftir þetta Defoe fór útaf á 68.mínútu og inná kom Adebayor sem sýndi lipra takta og var jafnvel óheppinn að ná ekki að skora eða leggja upp mark. Gylfi kom inná fyrir Dempsey og Townsend fyrir Lennon. Aston villa varð svo fyrir áfalli þegar varnarmaðurinn Bennett meiddist eftir að hafa lent illa í baráttu við Bale upp við endalínu vallarins, var eins og Bennett hefði dottið á kant eða stétt fyrir utan völlinn og því miður fyrir Lambert þá var hann búinn með allar sínar skiptingar þannig að Aston Villa þurfti að spila einum færri síðasta korterið.
Við sigurinn færist Tottenham uppí 4 sætið tímabundið með 14 stig þvi sigri Man.Utd Newcastle fara þeir í 15 stig og upp fyrir Tottenham.
Tottenham átti 16 skot að marki þar af 6 á markið meðan Aston Villa átti 6 skot að marki þar af 3 á rammann. Tottenham átti 3 hornspyrnur en Aston Villa enga. Tottenham var með boltann 56% af leiknum og var með 87% sendingargetu.









