Tottenham lék sinn annan leik í Evrópudeildinni á fimmtudagskvöldið og var leikið gegn Panthinaikos frá Grikklandi og var spila í Grikklandi. Leikurinn endaði með jafntefli 1-1 þar sem Tottenham hefði átt að hirða öll þrjú stigin. Mark Tottenham skoraði fyrirliðinn Dawson með skalla eftir aukaspyrnu frá Huddlestone.
AVB stillti upp nokkuð sterku liði í þessum leik og í fyrri hálfleik var Tottenham miklu betra liðið. Það reyndi lítið á vörnina og sóknarleikurinn var nokkuð fínn. Tottenham skoraði eina markið í fyrri hálfleik þegar Michael Dawson skallaði boltann glæsilega í fjærhornið eftir aukaspyrnu frá Tom Huddlestone af kanntinum.
Í síðari hálfleik slakaði Tottenhamliðið fullmikið á og spilaði göngubolta oft á tíðum, í staðinn fyrir að keyra bara yfir Grikkina sem voru frekar slakir og ekki líklegir að gera mikið. Frammistaða liðsins í seinni hálfleik kom svo í bakið á liðinu þegar um 10 mínútur voru eftir þegar hárnákvæm sending kom innfyrir vörnina á einn Grikkjan sem setti boltann framhjá Lloris í markinu og í stöngina og inn.
Jafntefli niðurstaðan og Tottenhamliðið spilaði bara illa í þessum leik heilt yfir. Liðið spilaði hægan bolta sem Grikkirnir áttu ekki í miklum vandræðum með að verjast. Tottenham var samt miklu betra liðið í þessum leik, og með 100% frammistöðu hefði liðið unnið þennan leik örugglega.
Lið Tottenham í leiknum :
Lloris – Walker – Caulker – Dawson – Vertonghen – Lennon ( Townsend 75 ) – Dembele – Dempsey ( Gylfi 66 ) – Huddlestone ( Sandro 81 ) – Bale – Defoe
Ónotaðir varamenn : Cudicini – Gallas – Falque – Mason
Tölfræði
Með boltann
Panathinkaikos 47% Tottenham 53 %
Skot / á mark
Panathinkaikos 7 / 4 Tottenham 11 / 7
Hornspyrnur
Panathinaikos 4 Tottenham 6









