23. ára bið eftir sigri á Old Trafford lauk á laugardaginn var. Tottenham sótti þá Manchester United heim og unnu langþráðan sigur 2-3. Gary nokkur Lineker skoraði sigurmark Tottenham í 0-1 sigri á Old Trafford árið 1989, svo það var búin að vera löng bið eftir sigri á Old Trafford.
Tottenham byrjaði leikinn á laugardaginn af miklum krafti og eftir tæplega 2. Mínútna leik var Tottenham komið yfir 0-1. Vertonghen brunaði þá upp vinstri vænginn, lék inn í teig þar sem hann átti gott skot með hægri fæti sem fór af hendi varnarmanns og í netið á nærstönginni. Óskabyrjun hjá Tottenham.
Tottenham hélt áfram að vera betra liðið í fyrri hálfleik og virkuðu leikmenn Man. Utd slegnir útaf laginu með þessu marki hjá Tottenham í byrjun leiks. Það var svo eftir um hálftíma leik að Tottenham tvöfaldaði forystu sína þegar Bale skoraði frábært mark. Hann fékk boltann við miðlínu vallarins og keyrði upp, Defoe átti klassa gott hlaup frammi frá hægri til vinstri og dró með sér varnarmann sem opnaði glufu í vörn Man. Utd sem Bale nýtti sér. Geystist Bale inn í teig með Rio Ferdinand á eftir sér og skoraði Bale með góðu hægri fótar skoti í fjærhornið. Staðan orðin 0-2 og Tottenham að spila glimrandi flottan fótbolta og var forystan verðskulduð.
Man. Utd gerði skiptingu í hálfleik þar sem Giggs fór útaf og inná koma Rooney. Þegar um 6 mínútur voru búnar af síðari hálfleik byrjaði ballið, á 51. Mínútu átti Rooney flotta sendingu fyrir frá hægri sem Nani mætti á nærstönginni og setti boltann snyrtilega í netið og staðan því orðin 1-2 og nóg eftir. Í næstu sókn gerði Defoe mjög vel og átti eitraða sendingu á Bale sem var á hlaupi inn í teig, Bale átti hörkuskot að marki Man. Utd sem Lindegaard í marki Man. Utd varði mjög vel en boltinn barst út í teig aftur þar sem Dempsey kom og lagði boltann í tómt markið. Tottenham aftur komnir með tveggja marka forystu. En Adam var ekki lengi í paradís og mínútu eftir mark Tottenham kom næsta mark þegar Persie átti góða sendingu í gegnum vörn Tottenham á Kagawa sem snéri sér flott í teignum og setti boltann framhjá Friedel sem kom út á móti og í stöngina og inn fór boltinn. 3 mörk á um það bil þremur mínútum og staðan orðin 2-3 og um 40 mínútur eftir af leiknum !
Man. Utd voru oft nálægt því að jafna leikinn það sem eftir lifði leiks, m.a. átti Rooney skot í stöng úr aukaspyrnu ásamt því að boltinn fór einu sinni í þverslá á marki Tottenham. Persie brenndi af dauðafæri og svo vildu Man. Utd fá víti en fengu ekkert fyrir sinn snúð. En vörn Tottenham hélt þetta út og sigur 2-3 varð niðurstaðan. Frábær sigur í alla staði.
Lið Tottenham í leiknum:
Friedel – Walker – Caulker – Gallas – Vertonghen – Lennon – Sandro – Dembele ( Huddlestone 83 ) – Dempsey ( Gylfi 69 )– Bale – Defoe ( Dawson 90 )
Ónotaðir varamenn:
Lloris – Falque – Mason – Townsend
Tölfræði úr leiknum ( af vef BBC )
Með boltann:
Man Utd 48 % Tottenham 52 %
Skot / á mark
Man Utd 15 / 8 Tottenham 10 / 6
Hornspyrnur
Man Utd 9 Tottenham 5









