** UPPFÆRT ** UPPSELT ER Í FERÐINA OG KOMUST FÆRRI AÐ EN VILDU
Daginn
Nú er komið að fyrstu hópferð Tottenhamklúbbsins á tímabilinu 2013-2014.
Farið verður á stórleik Tottenham – Newcastlesem fram fer á White Hart Lane , sunnudaginn 10. Nóvember.
Ferðatilhögun er eftirfarandi :
FLUG
KEF – LONDON GATWICK Föstudagur 8. Nóvember kl. 07.00 lent úti kl. 10.05 WOW Air
LONDON GATWICK – KEF Mánudagur 11. Nóvember kl. 19.40 heimkoma kl. 22.50 WOW Air
GISTING
Travelodge London Stratford í þrjár nætur ( án morgunmats )
Full English morgunverðarhlaðborð í boði á morgnana á £ 7.65 – þarf ekki að panta.
Stílhreint og einfalt hótel í Stratford, nálægt Ólympíusvæði London.
Veitingastaður / Bar á hótelinu – hér er týpískur matseðill fyrir Travelodge ( getur verið smá breytilegur milli hótela ) – http://www.travelodge.co.uk/assets/img/bar_cafe/bar_cafe_menu.pdf
Nokkura mínútna gangur á Stratford stöðina
– Central Line í Underground beint inn í miðbæ London – Oxford Circus ( 15 mín lestarferð )
– Ofanjarðarlest beint á Northumberland lestarstöðina ( 15 mín lestarferð ) sem er stutt frá White Hart Lane ( ca. 10 mín gangur )
Westfield Shopping Centre er þarna rétt hjá þar sem eru yfir 300 verslanir og 70 veitingastaðir – ásamt kvikmyndahúsi og spilavíti.
http://uk.westfield.com/stratfordcity/
Umsögn gesta á Tripadvisor um hótelið : http://www.tripadvisor.com/Hotel_Review-g186338-d2554880-Reviews-Travelodge_London_Stratford-London_England.html
RÚTA
Rúta til og frá flugvelli í London
MIÐI + MEMBERS
Miði á leikinn á langhlið ( Austur stúka ) ásamt skráningu í klúbbinn úti
ÍSLENSK FARARSTJÓRN
Verð : 89.900.- Miðað við 2 í herbergi
Einnig er hægt að vera 3 í herbergi ( pull-out bed ) og kostar það 84.900.- á mann.
Verð fyrir einstaklingsherbergi er 105.900.-
· Þeir sem eru þegar skráðir sem meðlimir Tottenhamklúbbsins í Bretlandi borga sem nemur 8.000.- minna fyrir ferðina. Gefa þarf þá upp númer meðlimakorts við skráningu.
Þess má til gamans geta að gamanferðir eru að bjóða ferð á þennan leik í nóvember , og kostar hún 119.900.- og er frá laugardegi til mánudags ( með ferðatösku báðar leiðir = 125.700 )
http://gamanferdir.is/ferdhir/fotboltaferdhir?task=view_event&event_id=507
Einungis er hægt að bóka í ferðina í viku – frá deginum í dag.
20 sæti eru í boði í þessa ferð
Sæti í hópferðirnar seldust upp á þremur dögum og fimm dögum á síðasta tímabili. Þannig að það er um að gera að bóka sem fyrst J
Það sem þarf að koma fram við bókun ( ef bókað er fyrir fleiri en einn, þurfa þessar upplýsingar að fylgja fyrir alla )
– Nafn
– Kennitala
– Heimilisfang
– GSM númer
– Double bed / Twin bed / 3 í herbergi
Staðfestingargjald , kr. 25.000.- á mann þarf að greiða við skráningu í ferðina. Þetta staðfestingargjald er óendurkræft nema hægt sé að fylla í sætið.
Staðfestingargjald skal greiða inná reikning klúbbsins : 0537 – 26 – 3110 , kt. 630103-3550 – og senda skal greiðslukvittun á spurs@spurs.is
Tottenhamklúbburinn áskilur sér rétt til að hætta við ferðina ef þátttaka er ekki nægilega góð – og munu þá þeir sem greitt hafa staðfestingargjaldið fá endurgreitt. Þetta myndi þá koma í ljós í næstu viku þegar skráningu í ferðina lýkur.
Kv
Stjórnin









