Sigur í evrópukeppninni

0
779

Tottenham vann öruggan 3-0 sigur á heimavelli gegn Dinamo Tbilisi í seinnileik liðanna í umspili fyrir evrópudeildina og samtals 8-0 eftir að hafa unnið fyrri leikinn 5-0

Markaskorara í leiknum voru þeir Defoe með tvö og Holtby með sitt fyrsta mark fyrir Spurs.  Liðið var ansi breytt frá leikjunum tveimur í deildinni.  Í markinu stóð hinn aldraði Brad Fridel og í vörninni byrjaði Kaboul sinn fyrsta alvöru leik fyrir Spurs síðan í upphafi síðasta tímabils ásamt þeim Vertonghen, Walker (Fryers 57) og Naughton.  Á miðjunni byrjaði Sandro, Carroll, Gylfi, Townsend (Kane 45), Holtby (Dembele 76) og fremstur var svo Defoe sem með mörkunum sínum er orðinn sjötti markahæðsti leikmaður Spurs frá upphafi og aðeins fjórum mörkum frá metinu hans Martin Chivers sem skoraði 22 evrópumörk á sínum tíma með Spurs.

Leikurinn náði aldrei að verða sú fugeldasýning sem margir hverjir vonuðust eftir enda kannski litlu að keppa eftir að Tottenham vann fyrri leikinn 5-0 á útivelli.

Heimamenn byrjuðu leikinn mun betur og sköpuðu sér góð færi án þess að ná að skora fyrr en á 40. mínútu þegar Sandro vann boltann og kom honum á Holtby sem sendi boltann inn fyrir vörnina á Defoe sem kláraði sitt færi vel og staðan orðin 1-0.  Það var svo í uppbótartíma fyrri hálfleiks að leikmenn Tottenham bættu við sínu seinna marki en það var eftir góðan undirbúning Sandor og Walker að boltinn barst svo til Gylfa sem átti góða sendingu á Defoe sem skoraði laglega með hnitmiðuðu skoti.  Í seinni hálfleik hefðu leikmenn Spurs auðveldlega getað skorað fleiri mörk því bæði áttu Gylfi og Defoe góð tækifæri til þess en það var hinsvegar Holtby sem innsiglaði sigurinn með laglegu skoti í slánna og inn á 69. mínútu og þar við sat og Tottenham komst áfram í evrópudeildina.

Mótherjar Tottenham í Evrópudeildinni í vetur verða svo FC Anzhi frá Rússlandi, FC Sheriff frá Moldavíu og svo Tromso frá Noregi en Spurs á leik við þá einmitt fyrst umferð í Evrópudeildinni 19. september kl 19:05 á White Hart Lane en nánari upplýsingar um leikina í evrópudeildinni er að finna hér