Tottenham sigraði Swansea 1-0 í hörkuleik á White Hart Lane fyrr í dag. Bæði lið eru þekkt fyrir frábæra knattspyrnu og þó mörkin hafi ekki verið mörg var ekki hægt að kvarta yfir gæðum leiksins.
Byrjunarliðið: Lloris; Walker, Dawson, Vertonghen, Rose; Capoue, Dembele, Paulinho; Townsend, Soldado, Chadli. Komu inn á: Sandro, Sigurdsson, Defoe.
Ónotaðir varamenn: Friedel, Kaboul, Naughton, Carroll,
Bæði lið í dag reyndu að halda boltanum á jörðinni og ekki var mikið um ljótar tæklingar, Tottenham hafði yfirhöndina í fyrra hálfleik og náðu skapa sér nokkur góð færi, en besta færið kom þegar Paulinho fékk boltann inn í teig og átti skota á markið eftir að honum hafði borist boltinn eftir að varnarmaður Swansea skallaði boltan klaufalega í stöng síns eigin marks, eftir fasta fyrirgjöf frá Walker. Leikmenn Swansea sýndu einnig ágæta tilburði í fyrri hálfleik, en þó aðallega í að halda boltanum, þeir voru síðan fljótir að missa hann þegar þeir hættu sér inn á miðjusvæði Tottenham, þar sem að okkar nýju liðsmenn Capoue og Paulinho voru eins og hakkavélar í dag.
Í síðar hálfleik jókst pressa Spurs mikið og það leiddi á endaum til þess að á 58. mínútu fiskaði Andros Townsend frekar vafasama vítaspyrnu, sem var allt í lagi þar sem að dómarinn hafði sleppt því að dæma augljósa vítaspyrnu rétt fyrir lok fyrri hálfleiksins. Á vítapunktinn steig öruggasta vítaskytta deildarinnar, Roberto Soldado sem sendi markmanninn í vitlaust horn og skoraði auðveldlega í hægra hornið. Tveir leikir og tvær vítaspyrnur komnar, eftir að hafa ekki fengið neina vítaspyrnu í fyrra, sem er ekkert annað ótrúlegt. Staðan orðinn 1-0 og 32 mínútur til leiksloka. Eftir þetta gáfu Tottenham mikið eftir og Swansea voru heldur líklegri til að skora, þó þeir hafi ekki náð að búa til nein færi af einhverju viti. Tottenham þéttu sinn leik og beitu skyndisóknum það sem eftir lifði leiks og endaði leikurinn 1-0 fyrir Spurs, sem voru mjög þéttir og öruggir í sínum aðgerðum allan leikinn. Tottenham eru því komnir með 6 stig eftir tvo leiki, en Swansea ekkert stig, þeir þurfa þó ekki að hafa miklar áhyggjur þar sem tveir fyrstu leikir þeir hafa verið á móti tveimur af fjórum sterkustu liðum deildarinnar, og þeir sýndu fínan bolta í dag, þrátt fyrir úrslitin.
Það var varla veikan hlekk að finna á liðinu í dag, en Dembéle var þó langt frá sínu besta. Nýju leikmennirnir héldu áfram að heilla mann í dag og dýrasti leikmaður í sögu Spurs, Roberto Soldado er nú kominn með 4 mörk í 3 leikjum fyrir Spurs. Paulinho var ótrúlegur í dag bæði framm á við og tilbaka og var hreinlega óheppinn að skora ekki í dag. Félagi hans á miðjunni, Capoue var engu síðri og virðumst við vera komnir með einhvers konar blöndu af Huddlestone og Sandro, í þeim leikmanni. Chadli var ekki áberandi í dag, en samt bara nokkuð traustur í sínum aðgerðum. Hugo, Verthongen og Dawson voru frábærir, ungu mennirnir Rose og Walker voru traustir og Townsend hélt áfram að heilla mann, þótt hann þurfi að finna milliveginn í þessu sólói sínu. Varamennirnir áttu síðan fínar innkomur og einstaklega gaman að sjá Sandro spila aftur. Liðið virðist alls ekkert sakna Bale, þeim frábæra leikmanni, því leikur liðsins virkar bara mun jafnari í dag heldur en í fyrra á sama tíma.
Maður leiksins: Paulinho
Næsti leikur: Dinamo Tibilisi á White Hart Lane, á fimmtudaginn, klukkan: 19:05









