Tottenham fór í heimsókn til Kýpur á fimmtudaginn var og átti þar í höggi við AEL Limassol. Tottenham vann leikinn 1-2 eftir að Kýpverjarnir komust yfir 1-0.
Mörk Tottenham í leiknum skoruðu Soldado og Kane, Lamela átti mjög góðan leik og lagði upp bæði mörkin eftir að hafa komið inná sem varamaður.
Gott veganesti í seinni leikinn sem verður á WHL á fimmtudaginn kemur.









