Það er langt síðan leikmenn Spurs hafa sýnt jafn mikinn baráttuvilja og sóknarkraft og í dag þegar liðinu tókst að koma til baka og sigra eftir að hafa lent 2-0 undir gegn Charlton. Skiptingarnar sem Martin Jol gerði áttu stóran þátt í að tryggja Spurs sigurinn en það var einn varamannanna, Robbie Keane, sem skoraði sigurmarkið á 81. mínútu, áður höfðu þeir Ledley King og Mido skorað.
Það var aðeins gerð ein breyting á liðsuppstillingunni frá síðasta leik, Kelly kom inn fyrir Lee sem var meiddur.






