Mido tognaði

0
703

Eins og flestir tóku eftir lá Mido á jörðinni þegar Robbie Keane skoraði sigurmark Spurs á laugardaginn. Hann var síðan leiddur af velli haltrandi skömmu síðar, en hann skoraði einmitt jöfnunarmark leiksins. Martin Jol greindi frá meiðslum hans á heimasíðu Tottenham í dag.

„Mido byrjaði að fá krampa, en hann hélt áfram og tognaði lítillega aftan í hnésbótinni. Vonandi verður þetta samt ekki alvarlegt.”