Martin Jol var að vonum ánægður eftir sigur liðsins á Sunderland í dag en með sigrinum komst liðið í 4. sæti deildarinnar, en flest liðin fyrir neðan eiga leiki inni. Jol var sérstaklega ánægður með framlag Michael Carrick en hann skoraði sigurmarkið, sem var jafnframt fyrsta mark hans fyrir félagið.
„Þetta var frábær fyrsta snerting hjá Carrick og það var gaman að sjá hann loksins skora, við áttum sigurinn skilinn,” sagði Martin Jol.
Aðspurður um það hvort það skipti máli að vera fyrir ofan Arsenal sagði Jol að það hefði enga þýðingu þar sem þeir ættu leik inni, líkt og önnur lið fyrir neðan Spurs.
Um leikinn sjálfan sagði Jol: „Það er alltaf erfitt að lenda undir en þeir(Sunderland) voru ákveðnir, metnaðarfullir og eru að berjast fyrir lífi sínu þannig að þeir geta alltaf skorað mark.”
„Dagurinn í dag sannaði að maður getur ekki átt auðvelda leiki hér í Englandi, Wigan voru erfiðir í síðustu viku og Sunderland í dag. Við áttum skilið að vinna, en það er ekki auðvelt þegar andstæðingurinn skorar 2 mörk,” sagði Martin Jol um leikinn í dag.






