Jólavertíðin byrjar vel

0
714

Leikurinn við Birmingham var allt annað en auðveldur fyrir Tottenham. Miðað við stöðu liðanna í deildinni hefðum við átt að vera búnir að klára þetta fyrir hlé. En eins og oft áður náðum við ekki að brjóta þá niður og ef eitthvað var voru Birmingham menn betri í fyrri hálfleik.  Baráttan hélt áfram í þeim seinni en fyrstu tíu mínútur þess hálfleiks vorum við í nokkrum vandræðum. Á 56 mínútu vann svo Keane víti. Upson (fyrrum Arseleikmaður) felldi Keane í teignum og dómarinn benti á punktinn. Keane tók vítið sjálfur og setti boltann í hægra hornið öfugt við það sem hann er vanur að gera. Muzzy Izzet var svo rekinn af velli eftir að hann fékk sitt annað gula spjald fyrir leikaraskap í teig Tottenham. Við vorum samt ekki öruggir fyrr en að Defoe sem komið hafði inn á í seinni hálfleik skoraði í uppbótatíma og tryggði 2-0 sigur á Birmingham. Liðið var ekki að spila mjög vel en vann engu að síður og það eru mikil batamerki frá síðustu leiktíð þar sem mikið af svona leikjum klúðruðust. Þáttur Edgar Davids vegur þarna lang mestu í þessari breytingu sem orðin er.

Liðið: Robinson; Stalteri, Dawson, King, (Pamarot, 67), Lee; Lennon (Defoe, 58), Jenas, Carrick, Davids; Keane (Brown, 72), Mido.
Varamenn ekki notaðir: Cerny; Rasiak

DEILA
Fyrri fréttJólakveðja
Næsta fréttAndi liðinna jóla