Já hann sýndi sig svo sannarlega andi liðinna jóla í gærkvöldi gegn West Brom. Við fengum að sjá Tottenham lið sem gerði mest lítið af viti. Lítil barátta og misheppnaðar sendingar ásamt lélegum varnarleik tryggðu West Brom nokkuð auðveldann sigur.
Jol gerði fjórar breytingar á liðinu frá síðasta leik. Gardner kom inn fyrir King sem meiddist í síðasta leik. Rautledge tók stöðu Lennon og framlínan var ný, Defoe og Rasiak. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um leikinn því við vorum bara mjög lélegir (menn mættu bara ekki í leikinn). Sem betur fer gerist það sjaldnar og sjaldnar að þetta gerist. Ég held að þetta sé aðeins í annað sinn í vetur (hitt var gegn Grimsby) sem við sjáum svona leik (leikleysu). Nú verða menn að koma til baka eins og eftir þennan Grimsby leik ef þessi árangur sem hefur náðst á ekki að verða til einskis.
Liðið: Robinson, Stalteri, Lee, Dawson, Gardner, Carrick, Davids, Jenas (Brown, 85), Routledge (Keane, 55), Defoe, Rasiak (Mido, 69). Varamenn ekki notaðir: Cerny, Pamarot.