Danny Murphy kominn í Tottenham

0
568

Það tókst að munstra Danny Murphy í okkar raðir fyrir lokun gluggans alrænda. Við reyndum að kaupa pilt þegar hann fór frá Crewe Alexandra en hann valdi Liverpool. Svo valdi hann Charlton fyrir um átján mánuðum þegar hann fór frá Liverpool. Nú segir hann að aðstæður séu réttar en hafi ekki verið það þá.   Hann segist yfir sig ánægður með þróun mála og hlakkar til að spila í okkar treyju. Danny er sóknartengiliður og á greinilega að hressa upp á markaskorun af miðjunni ásamt að leggja upp mörk fyrir sóknarmennina.