Tottenham í Puma

0
661

Tottenham Hotspur er búið að gera samning við íþróttavöruframleiðandann Puma um að sjá félaginu fyrir búningum næstu 5 árin. Samningurinn er sá stærsti sinnar tegundar sem félagið hefur gert. Samningurinn tryggir félaginu 5 milljónir punda á tímabili út samningstímann.

Samningurinn þýðir að Spurs enda samstarf sitt við Kappa sem hafa séð félaginu fyrir búningum síðustu 4 ár, en margir aðdáendur Spurs hafa ekki verið fullkomlega sáttir við búninga síðustu ára.

Talið er að samningurinn muni veita félaginu 4-5 milljónir punda á ári næstu 5 árin, en eins og áður hefur komið fram er það met fyrir enskt knattspyrnufélag.

Nú á aðeins eftir að semja við styrktaraðilia fyrir næstu tímabil en nokkur fyrirtæki hafa verið nefnd í því sambandi þar á meðal LG Electronics(raftæki) og T-Mobile(símafyrirtæki).

DEILA
Fyrri fréttPaul Robinson
Næsta fréttKeane og Defoe áfram saman