Ledley King leikur ekki meira með Tottenham á þessari leiktíð vegna meiðsla. Staðfest var í morgun að hann er brotinn á vinstri fæti og mun þurfa amk 3-4 vikur að jafna sig. Þetta eru slæmar fréttir fyrir Tottenham þar sem hann er einn af lykilmönnum liðsins og liðið er enn í hörku baráttu um 4.sætið. Einnig kemur þetta á versta tíma fyrir King því óvíst er hvort hann verði klár í slaginn þegar enski HM landsliðshópurinn verður tilkynntur þann 15.maí og gæti því misst af Heimsmeistaramótinu í sumar.






