Tottenham heimsótti Arsenal á Highbury í gær í síðustu viðureign þeirra á þessum velli. Leikurinn var spennandi frá fyrstu mínútu enda bæði liðin að berjast um fjórða og síðasta meistaradeildarsætið. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli en stigið tryggði Spurs þó rétt til þátttöku í evrópukeppninni á næstu leiktíð.
Þessi grannaslagur stefndi í að verða sá mest spennandi í langan tíma enda bæði liðin að berjast um eitt laust sæti í meistaradeildinni. Val á byrjunarliði dagsins var ekki gefið mál enda margir leikmenn spurs meiddir og margir sem stóðu frammi fyrir prófi á síðustu stundu um ástand sitt. Mido, King, Davenport og Jenas voru allir meiddir en Davids, Gardner og Tainio náðu að jafna sig í tíma fyrir leikinn. Martin gerði því tvær breytingar á byrjunarliðinu frá síðasta leik, Gardner tók sæti Davenport og Tainio kom inn í stað Jenas. Leikurinn fór hratt af stað og var mikið um baráttu og augljóst að hvorugt liðið ætlaði sér að tapa þessum leik. Fyrstu mínúturnar gerðist ekki margt sem vert er að nefna en fljótlega fóru leikmenn spurs að taka yfirhöndina og áttu mun fleiri færi. Tainio átti tvö færi á markið, Defoe fékk boltann fyrir framan markið en skaut í nefíð á Lehmann og Lennon og Keane áttu góða spretti saman fyrir framan mark Arsenal en ekki báru þessi færi árangur. Hættulegasta færi fyrri hálfleiks fékk hins vegar Michael Carrick þegar hann lék á 3 varnarmenn í vítateig Arsenal, lék svo á Lehmann en endaði því miður á að skjóta í hliðarnetið. Staðan í hálfleik var því 0-0 en Tottenham hafði átt fleiri færi og hélt boltanum mun meira en Arsenal, eða 61% af fyrrihálfleik.
Í seinni hálfleik gerðist atvik sem mikið hefur verið deilt um. Á 66. mínútu hlupu þeir Gilberto og Eboue saman og féllu til jarðar en boltinn barst til Carrick. Dómarinn athugar með mennina sem virðast ekki alvarlega slasaðir og gefur því Carrick til kynna að hann megi spila áfram. Carrick gefur á Tainio sem þá gefur á Davids og Davids sér Keane inni í teig, gefur boltann fyrir og Keane skorar. Arsenal menn voru hreint út sagt ekki ánægðir með þetta þar sem þeir vildu meina að sparka hefði átt boltanum út af því að meiddir menn væru liggjandi á vellinum. Meiðslin virtust ekki meiri en þau að Gilberto stóð nánast strax upp en Eboue lá þó enn en virtist þó ekki sárþjáður. Menn hafa deilt um þetta og ansi mikið orðastríð staðið á milli Wenger og Jol, en Jol segist ekki hafa séð að menn væru meiddir. Sjúkraþjálfarar Arsenal hlúðu aðeins að Eboue sem var svo með sprækari mönnum það sem eftir lifði leiks. En markið stóð og forustan verðskulduð enda leikmenn Spurs að spila mun betur. Henry hafði byrjað á bekknum en var kominn inn á þegar þetta gerðist og hann átti eftir að hafa áhrif á þennan leik því á 84.mínútu skoraði hann jöfnunarmark Arsenal. Adebayor spilaði upp vinstri kantinn, átti í smá peysutogi við Stalteri en þrátt fyrir að sumir vildu fá aukaspyrnu á Arsenal þá flautaði dómarinn ekkert, Adebayor gaf boltann á Henry sem skoraði. Mínútu síðar var Davids svo rekinn af velli eftir að hafa fengið sitt annað gula spjald í leiknum og leikmenn Tottenham því orðnir 10. En Tottenham varðist vel undir lok leiks þrátt fyrir stórsóknir Arsenal og leiknum lauk með jafntefli 1-1. Tottenham hefur því enn 4 stiga forustu á Arsenal en þeir síðarnefndu eiga þó leik inni. Tottenham er því í betri stöðu varðandi fjórða sætið, það er í höndum okkar manna og sigur í síðustu tveimur leikjunum tryggir sætið.
Lið Spurs: Robinson, Stalteri, Dawson, Gardner, Lee, Lennon (Murphy 77), Tainio, Carrick, Davids, Keane og Defoe. Bekkurinn: Cerny, Kelly, Naybet og Barnard.
MAÐUR LEIKSINS: MICHAEL CARRICK






