Æfingarleikir framundan

0
581

Það styttist nú mjög að boltinn fari að rúlla hjá okkar mönnum í London. Liðið mun fara til Frakklands og leika þar þrjá leiki. Fyrst mæta þeir Bordeaux þann 13. þessa mánaðar í Albertville. Daginn eftir spilar Tottenham við Nice í Thonon. Síðasti leikurinn er svo gegn spænska liðinu Celta Vigo 18. júlí í Annecy.
Fyrsti leikurinn heima í Englandi er þann 22. gegn Birmingham í Birmingham og svo árlegi leikurinn við Stevenage þann 25. júlí. á heimavelli Stevenage.
Þá er komið að stórleik á White Hart Lane sjálfum þegar Inter Milan kemur í heimsókn. Sá leikur fer fram 30. júlí. Annar stórleikur er svo 5. ágúst en þá fer liðið til Þýskalands og spilar við Borussia Dortmund á þeirra heimavelli sem nú er einmitt notaður í HM. Ekki er búið að tilkynna fleiri æfingaleiki en deildin hefst svo 19. ágúst. Ekki er vitað á þessari stundu hvort eitthvað af þessum leikjum verði sjónvarpað, en það verður að teljast líklegt, en við munum láta vita um leið og fréttir berast af því.