Tottenham byrjaði undirbúningstímabilið vel í kvöld með 2-1 sigri á Bordeaux í Frakklandi. Staðan var jöfn lengi vel en Kieran McKenna skoraði sigurmarkið á 88. mínútu. Jermain Defoe hafði komið Spurs yfir í fyrri hálfleik áður en Bordeaux jöfnuðu rétt fyrir hléið.
Tveir leikmenn voru að leika sinn fyrsta leik með liðinu í kvöld, þeir Dimitar Berbatov og Assou-Ekotto. Martin Jol getur án efa verið sáttur við þessa byrjun á undirbúningstímabilinu en andstæðingar Spurs næsta mánuðinn eru í erfiðari kantinum.
Liðið í kvöld: Cerny, Ifil (McKenna, 79), Assou-Ekotto, Davids, Dawson, Gardner, Routledge (Ziegler, 60), Murphy (Lee, 87), Berbatov (Barnard, 79), Defoe (O’Hara, 60), Reid. Ónotaðir varamenn: Davenport, Fulop og Huddlestone






