Aðalfundur Tottenhamklúbbsins

0
656

Í gærkvöldi föstudagskvöld var aðalfundur klúbbsins haldiinn. Góð mæting var. Formaður fór yfir starfsemina á síðasta tímabili. Alldrei hafa jafn margir verið í klúbbnum og á síðasta tímabili eða 249. Farin var ein ferð á leik og var það afmælisferð klúbbsins á Tottenham-Everton í október. Auk þess að fara á leikinn var í henni var haldin árshátíð klúbbsins auk þess sem White Hart Lane var skoðað og Robinson fékk afhenta viðurkenningu en klúbbfélagar kusu hann besta leikmann félagsins tímabilið 2004-2005. Tuttugu og fimm fóru í þessa ferð. Tvö blöð kömu út á þessum tíma og leikskrá. Síðasta vetur útvegaði klúbburinn 131 félaga miða á leiki Tottenham og er þá ferðin á Everton leikinn meðtalin.
Velta klúbbsins var á síðasta ári tæpar 2,5 milljónir. Afgangur varð tæplega 370 þús. Það ber þó að hafa í huga að eftir var að greiða tvo reikninga þannig að þetta ár verður væntanlega lærra sem því nemur. Júlíus S. Ólafsson hætti í stjórn og var Sigrún Á. Júlíusdóttir kosin í stjórn í hans stað. Sigrún er dóttir Júlíusar. Hún er að öllum líkindum fyrsta konan í stjórn stuðningsklúbbs á Íslandi.
Á fundinum var kynntur samstarfssamningur sem verið er að leggja lokahönd á við Express ferðir um samvinnu í ferðum á leiki Tottenham næstu tvö árin að minnsta kosti. Þessi samningur verður kynntur hér þegar búið er að ganga frá honum og skrifa undir.
Að lokum var Júlíusi afhent gjöf frá klúbbnum og honum þakkað hans framleg og vinna í þágu klúbbsins. 
Einnig var Sigrúnu Á. Júlúsdóttur afhent verðlaun sem hún vann í Getraunaleik klúbbsins í vetur en hún vann með glæsibrag annað árið í röð. 

DEILA
Fyrri fréttBerbatov með tvö
Næsta fréttStevenage-Spurs 0-3