Til hamingju með nýtt tímabil

0
528

Þá er biðin á enda. Fyrsti leikur nýs tímabils hefst kl. 16:15. Ég veit að þið hafið beðið spennt eftir þessum degi eins og ég. Tottenhamklúbburinn mun hittast sem fyrr í
Ölveri þegar Tottenham leikir eru sýndir. Vonandi hafa Spursarar annarstaðar á landinu einhvern stað til að hittast á og horfa á leiki. Ætlunin er að á laugardaginn 26. sept. (fyrir Everton leikinn á Ölveri)verði skrifað undir samstarfsamning með formlegum hætti við Express Ferðir og munum við gera okkur glaðan dag í tilefni þess. Annað varðandi klúbbinn er að fyrsta ferð vetrarins verður farin á Fulham leikinn sem er 17. sept. Enn eru til laus sæti í þá ferð. Hafa bara samband við Express Ferðir. Við stefnum að því að halda árshátíð í lok október. Leikskráin kemur út í byrjun september og blað í september. Það er ekki komin dagsetning á það. Greiðsluseðlar vegna árgjaldsins ættu að berast í næstu viku eða þarnæstu. Í samvinnu við Express Ferðir verður efnt til innritunarleiks sem felst í því að þeir sem ganga í klúbbinn og/eða borga fyrir ákveðinn dag fara í pott þar sem vinningur verður gjafabréf frá Express Ferðum. Meira um það seinna. 
Við munum auglýsa þær uppákomur sem við stöndum fyrir tímanlega eins og aðra ferð á leik.