Því miður tókst ekki að halda áfram sigurgöngu undirbúningstímabilsins þegar við lékum fyrsta leik okkar í deildinni þetta tímabilið. Það sem olli hvað mestum vonbrigðum var andleysið sem virtist ríkja hjá leikmönnum.
Jol stillti upp sama liði og spilaði gegn Real Sociedad fyrir viku í síðasta æfingaleiknum.
Við höfum ekki riðið feitum hesti frá Rebook leikvellinum undan farin ár svo að því leiti kom þetta kannski ekki á óvart. Það er hinsvegar ljóst að ef liðið ætlar sér eitthvað í vetur þá er það svona leikir sem verða að vinnast.
ÞAð er lítið hægt að segja um leikinn sjálfan, Boltonmenn voru líkamlega sterkari og þeir voru skipulagðir í sínum aðgerðum. Strax á 9. mínútu gera þeir mark eftir hornspyrnu. Það er ljóst að Boltonmaður heldur Davenport svo hann nær ekki að fykgja eftir Davies sem fékk frían skalla. Aðeins fjórum mínútum síðar fær Campo boltan einhverja 35-40 metra frá marki og smell hittir hann. Robinson taldi greinilega að boltinn færi hægra megin við Zokora sem reyndi að blokkera en þess í stað fór vinstra megin og því náði Robinson ekki til boltans og 2-0 staðreynd. Defoe átti eitt gott skot á markið en sást lítið annars. Jenas sást nánast ekkert og aðrir léku undir getu.
Liðið: Robinson, Lee, Assou-Ekotto, Dawson, Davenport, Lennon (Keane, 59), Jenas, Zokora (Huddlestone, 74), Davids, Berbatov, Defoe. Subs: Cerny, Gardner, Ziegler.






