Ferð á Fulhamleikinn með Express Ferðum

0
621

Tottenhamklúbburinn í samstarfi við Express Ferðir efnir til fótboltaferðar á leik Tottenham og Fulham þann 17. september nk. Flogið verður út föstudaginn 15. sept. og komið heim mánudaginn 18. sept. Gist verður á Holiday Inn Bloomsbury. Verðið er 49.900,- og innifalið er flug (Iceland Express), gisting í þrjár nætur og miði á völlinn og fararstjórn. Til að panta sæti í þessa ferð þarftu að smella á þennan link

 http://www.expressferdir.is/viewtrip.php?idt=387&idcat=2

Upplýsingar veita þeir Þór og Bragi hjá Express ferðum og Haraldur 698-2109 og Jónas 840-4052 hjá Tottenhamklúbbnum.

Nú er um að gera að skella sér á leik og sjá nýju mennina hjá Tottenham.