Tottenham-Everton 0-2

0
583

Eftir góðan fyrri hálfleik gegn Sheff. Utd. og sæmilegan seinni hálfleik áttu héld ég flestir von á að Everton yrðu auðveld bráð sem fyrr. En því miður kom enn einu sinn Tottenham lið fyrri ára í þennan leik og varð sér til háborinnar skammar.

Everton sem hefur greinilega styrkst síðan í fyrra kom ákveðið í þennan leik og jafnvel eftir að hafa mist mann útaf sást ekki á leiknum að svo hafi verið því Everton var miklu betri í öllum leiknum. Það sem gerir lið að top fjórum liðum er stöðugleiki og endalaus barátta. Það vantar algerlega í þetta Tottenham lið. Vonandi nær Jol að berja það í menn í næsta leik og svo áfram. Ég vill ekki sjá okkur verða að Everton síðast árs, en við byrjum þannig það er ljóst. 
Liðið:  Robinson, Lee (Defoe, 59), Assou-Ekotto, Dawson, Davenport, Lennon, Davids, Jenas, Tainio (Zokora, 73), Berbatov, Keane. Varamenn: Cerny, Stalteri, Gardner.