Mido keyptur til Spurs

0
705

”Egyptski sóknarmaðurinn Mido sem var í láni hjá Spurs í 18 mánuði síðustu 2 ár er genginn til liðs við félagið frá Roma. Ekki var neitt gefið upp um kaupverðið en leikmaðurinn á þó ennþá eftir að fá atvinnuleyfi.

Mikið var rætt um það síðastliðinn vetur hvort að kaupin á Mido yrðu að veruleika og var talið að yrði frágengið fljótlega eftir tímabilið. En svo var ekki og virtist Mido hafa leikið sinn síðasta leik fyrir Spurs fyrst að ekkert gerðist í sumar.

En samningar tókust loksins milli félaganna nú og var vilji Mido alltaf sá að leika fyrir Tottenham. Um kaupin hafði Martin Jol þetta að segja:

„Það tók tíma að sannfæra Roma en ég er ánægður að hafa hann í leikmannahópnum. Hann veit að mér líkar vel við hann og hans hæfleika og hann er maðurinn sem fyllir síðasta skarðið í sókninni.”

Um endurkomuna til Spurs sagði Mido: „Það var og mun alltaf vera heiður fyrir mig að spila fyrir Tottenham. Ég get ekki beðið eftir því að klæðast búningnum og spila á White Hart Lane.”

DEILA
Fyrri fréttExpress leikur
Næsta fréttAnthony Gardner