Hópurinn fullskipaður

0
713

Leikmannahópur Spurs fyrir fyrri hluta tímabilsins a.m.k. hefur verið fullskipaður eftir annasaman lokadag félagaskiptagluggans. Fest voru kaup á 2 nýjum leikmönnum, þeim Steed Malbranque og Pascal Chimbonda samtals fyrir 8 milljónir punda.

Martin Jol segir að nú sé hann virkilega ánægður með leikmannahóp sinn og að hann geti ekki beðið eftir að leikmennirnir snúi aftur úr landsleikjum sínum.

„Við höfum nú hóp sem ég er viss um að getur bætt frammistöðu okkar frá síðasta tímabili. Þegar ég lít niður listann sé ég að í hverri stöðu eru 2-3 leikmenn sem geta leyst þá stöðu vel,” sagði Jol.

Mikið var rætt um þörf fyrir vinstri kantmann og leysti Jol það að hluta með kaupunum á Malbranque, en hann verður þó frá næstu 10 vikurnar vegna meiðsla. En Jol sagði að leikmenn eins og Reto Ziegler, Teemu Tainio og Aaron Lennon gætu allir leyst þá stöðu.

Nú er bara ósk okkar allra að nýju mennirnir aðalagist fljótt að leik liðsins og að liðið þjóti upp töfluna í næstu leikjum.