Ekki varð það svo eins og við stuðningsmenn Spurs vonuðum að liðið væri komið á beinu brautina og næði í auðveld 3 stig gegn Watford. Aftur mætti liðið sem ekki kann að spila gegn lélegu en baráttuglöðu liði. Ég spyr mig að því hvenær ýmsir hlutir eru æfðir á æfingasvæði Tottenham og þetta er eitt af þeim. Ef allt ef eðlilegt þá á þetta lið að vera búið að útskrifast úr þessu námskeiði um hvernig taka eigi á svona liðum eins og Watford. Öll lið sem verma að staðaldri efstu fjögur til fimm sætin kunna þetta en við erum ekki búnir að skrá okkur á þetta námskeið. Því fór eins og fór á laugardag. Við erum sennilega ennþá á námskeiðinu hvernig eigi að skora úr föstum leikatriðum.
En að leiknum. Það vanntaði ekki að LEnnon var sprækur og átti nokkur góð færi á að skora en gerði það ekki. Jol var með skýringuna: Lennon þarf svona eitt til tvö ár í viðbót til að læra það. Við getum farið að hlakka til tímabilsins 2008-2009. Við getum þakkað dómara leiksins eða öllu heldur línuverðinum öðrum að hann dæmdi rangstöðu á Watford sem var það ekki og við sluppum með skrekkinn. Watford átti sín færi eins og við en þetta var niðurstaðan.
Liðið: Robinson, Chimbonda, Dawson, King, Assou-Ekotto, Ghaly (Murphy, 67), Huddlestone, Jenas, Lennon, Keane (Defoe, 76), Berbatov. Varamenn: Cerny, Davids, Gardner.






