Spurs 3-1 Club Brugge

0
546

Tottenham héldu sigurgöngu sinni í Evrópu áfram með 3-1 sigri á belgíska liðinu ClubBrugge í kvöld. Dimitar Berbatov átti sinn besta leik fyrir Spurs, skoraði 2 mörk og lagði upp mark fyrir Robbie Keane.

Leikmenn Spurs áttu fjölmörg færi í leiknum og eina verkefni Paul Robinson var að hirða boltann úr netinu snemma í leiknum. Brugge áttu aldrei séns í leiknum, en þó spiluðu þeir ágætlega á tímabili í fyrri hálfleik.

Gestirnir komust yfir eftir rúmar 10 mínútur en Spurs voru ekki lengi að svara og skoraði Dimtar Berbatov glæslegt mark eftir skalla frá Pascal Chimbonda.

Spurs áttu síðan þó nokkur færi til að skora aftur fyrir hlé en ekki tókst það. Aaron Lennon var eins og alltaf ógnandi á kantinum en þegar hann komst inn í vítateginn virtist hann vanta sjálfstraust. Var það líkrlega leikur síðustu helgar sem stríddi Lennon.

Seinni hálfleikurinn var byrjaður af krafti, og leikmenn Spurs óðu nánast í færum. Annað markið var síðan skorað af Robbie Keane um miðjan seinni hálfleikinn. Berbatov gaf frábæra sendingu í gegnum vörnina og Keane skoraði með öruggu hægri fótar skoti.

Berbatov gerði síðan út um leikinn skömmu síðar með góðu skallamarki eftir gott spil sem byrjaði með langri sendingu fram völlinn frá Ledley King, sem var enn og aftur eins og klettur í vörninni.

Þessi sigur mun vonandi lyfta leikmönnum Spurs og veita þeim aukið sjálfstraust fyrir leik helgarinnar gegn meistaraliði Chelsea. En óþarft er að minna fólk á ákveðna staðreynd – Spurs hafa ekki unnið Chelsea í deildinni síðan 1990.

Lið Spurs: Robinson 7, Chimbonda 7, Assou-Ekotto 6, King 8, Dawson 8, Zokora 6, Jenas 7, Lennon 7 (Murphy, 79), Ghaly 7, Berbatov 9 (Mido, 79), Keane 8. Ónotaðir varamenn: Cerny, Gardner, Huddlestone, Davids og Defoe

DEILA
Fyrri fréttDregið í Expressleiknum
Næsta fréttBiðin á enda