Biðin á enda

0
710

Það þurfti 16 ár, en biðin var svo sannarlega þess virði. Tottenham lögðu Englandsmeistara Chelsea af velli í dag 2-1, með mörkum frá Michael Dawson og Aaron Lennon.

Martin Jol hélt sama byrjunarliði og í síðasta leik, en hann hafði gefið í skyn í fjölmiðlum að hann myndi breyta liðinu þrátt fyrir sigurleik á fimmtudag.

Spurs byrjuðu leikinn vel en lentu samt undir snemma þegar Claude Makelele skoraði hreint ótrúlegt mark. En Makelele er ekki þekktur fyrir að skjóta á markið, hvað þá að skora glæsileg mörk.

Viðbrögð Spurs voru frábær og eiga þeir skilið mikið hrós fyrir að gefast ekki upp og halda áfram að berjast. Það var síðan annar ólíklegur markaskorari sem skoraði jöfnunarmark Spurs.

Michael Dawson skallaði boltann í netið eftir aukaspyrnu frá Jenas en þetta var fyrsta mark Dawson fyrir félagið, og átti hann það svo sannarlega skilið.

Staðan var 1-1 í hálfleik en Spurs enduðu fyrri hálfleikinn af miklum krafti og voru á þeim tímapunkti líklegri til að skora.

Robbie Keane var færður út á vinstri kantinn undir lok fyrri hálfleiks og áhrif hans á leikinn jukust mikið við þá breytingu. Keane var síðan arkitektinn að seinna marki Spurs sem kom eftir nokkurra mínútna leik í síðari hálfleik.

Khalid Boularouz var plataður illa af Keane út á vinstri kantinum, sem sendi boltann síðan fyrir markið þar sem Aaron Lennon tók boltann niður plataði einn varnarmann og setti boltann örugglega framhjá markverðinum í markið.

Skömmu síðar var fyrirliði Chelsea rekinn útaf, en það auðveldaði leikmönnum Spurs róðurinn síðustu mínúturnar. Pressan var samt engu að síður stundum mikil en vörn Spurs varðist vel eins og endranær.

Þegar dómarinn síðan loksins flautaði af gátu fagnaðrlætin hafist og eiga alla Spursarar skilið að fagna þessum sigri vel. 16 ára bölvun er lokið og meistarlið síðustu tveggja ára einnig. Spurs hafa ekki tapað í síðustu 9 leikjum sínum og sýnir það hve stórt skref hefur verið tekið fram á við undanfarinn mánuð.

Lið Spurs: Robinson 7, Chimbonda 8, Dawson 9, King 8, Assou-Ekotto 7, Lennon 8, Jenas 6, Zokora 7, Ghaly 6, Berbatov 7, Keane 8 (Defoe 85). Ónotaðir varamenn: Cerny, Davids, Mido og Huddlestone