Spurs – Dinamo Bucharest 3 – 1

0
710

Frábær sigur hjá Spurs í gærkveldi.  Yfirburðir liðsins voru með fádæmum.  Strax frá fyrstu mínútu sá maður hvað stefndi í.  Að lokum skoruðum við þrjú mörk og sigruðum leikinn 3-1 með tveimur mörkum frá Defoe og einu frá Berbatov.

Leikurinn var ekki nema einnar mínútu gamall þegar fyrsta færið leit dagsins ljós … Berbatov fékk góða sendingu inn í teiginn en gjörsamlega hitti ekki boltann … frekar klaufalegt.  Áfram hélt Tottenham að pressa og leikmann Dinamo varla komust yfir miðju.  Það bar svo til tíðinda á 16. mínútu þegar markvörður Dinamo kastaði boltanum frá marki, en ekki vildi betur til en boltinn fór beint á Berbatov sem stóð nokkra metra fyrir utan teig, sem lagði boltann fyrir sig og lét vaða á markið og boltinn endaði efst í markhorninu … glæsilegt skot, 1-0.  Aðeins mínútu síðar þurfti markvörður Dinamo að bjarga all svakalega þegar hann varði skot Defoe í slánna og þaðan fór boltinn út.  Mjög vel varið.  Það var í raun bara eitt lið á vellinum í fyrri hálfleik og var það ekki spurning hvort heldur hvenær næsta mark kæmi.  Það var svo á 40. mínútu sem næsta mark kom,  var þar að verki Defoe eftir snilldarútspark frá Robinson sem lenti hjá Defoe sem var rétt handan miðlínu vallarins, snéri af sér varnarmann og brunaði í átt að marki og kláraði færi með hnitmiðuðu skoti í fjærhornið,  2-0 og blásið var til hálfleiks.

Seinni hálfleikur byrjaði svo með sömu látum og sá fyrri hafði verið og uppskárum við mark strax á 50. mínútu.  Eftir snilldarupphlaup sendi Berbatov boltann frá hægri til vinstri á Ghaly sem lagði boltann inn í teiginn á Lennon sem átti skot að marki sem markvörðurinn varði en boltinn barst á Defoe sem lagði boltann í markið.  3-0 .  Eftir þetta áttum við nokkur færi til að bæta við en einhvern veginn fannst manni að menn nenntu þessu ekkert lengur.. hefðu örugglega bara verið til í að dómarinn flautaði af.  Það var svo á lokamínútu leiksins sem Dinamo náði að skora og minnka muninn í 3-1 …  og var það eingöngu vegna einbeytingarskorts hjá leikmönnum Tottenham sem voru bara að bíða eftir lokaflautinu.

Liðið í gær :  Robinson , Ekotto , Dawson , King ( Davenport ´68 ) , Chimbonda ( Stalteri ´76 ) , Lennon , Zokora , Huddlestone ( Malbranque ´68 ) , Ghaly , Defoe , Berbatov.    

Áhorfendur á WHL í gær voru 34.004

Markskot / Á rammann:   Spurs 26/17        Dinamo  17/8

Hin mesta skemmtun þessi leikur í gær …. var gaman að sjá til leikmanna Spurs sem voru greinilega vel tilbúnir í þennan leik og léku sér í raun að liði Dinamo.  Er ég ekki frá því að þetta lið Dinamo er eitthvað það slakasta sem mætt hefur til leiks á WHL í langan tíma.  Sá ég leikinn gegn Port Vale í bikarnum, og var Dinamo slakara í þessum leik en Port Vale í bikarnum.  Stutt er þangað til dregið verður í 32. liða úrslitum UEFA CUP .. og grunar mig að við mætum liði Feyenoord !!! 

Spurskveðja frá UK

Bio