Tottenham-Southend 1-0

0
722

Það þurfti framlengingu til að klára Southend í deildarbikarnum í gærkvöldi. Defoe gerði eina mark leiksins á 115. mínútu. Jol gerði fimm breytingar á liðinu sem lagði City á sunnudag. Stalteri, Dawson, Ekotto, Murphy og Mido komu inn fyrir King, Ghaly, Berbatov, Lee og Chimbonda.

Menn eru nokkuð sammála um að Spurs hafi ekki spilað vel í leiknum. Vörn okkar var góð en miðjan miðjan frekar léleg. Steed var þó sívinnandi og Hudd var sæmilegur. Aðrir voru ekki að skila sínu og þá var sóknin mistæk. Fór svo að leikurinn fór í framlengingu og stefndi í vítaspyrnukleppni þegar Steed átti sendingu á Mido á vinstri kanntinum. Mido lék upp í hornið og gaf fyrir á Defoe sem kom á flegiferð inn að markinu. Sumir vilja meina að Defoe hafi verið rangstæður en á þeim myndum sem ég hef séð tel ég rétt að hann njóti vafans. Southend menn börðust vel án þess að skapa sér mörg færi og eiga heiður skilið fyrir frammistöðuna í keppninni. Með sigrinum er Tottenham komið í fjögra liða úrslit en dregið verður í hádeginu á laugardag 23. desember. 
Liðið: Robinson, Stalteri, Assou-Ekotto, Dawson, Davenport, Malbranque, Murphy (Berbatov, 76), Huddlestone, Tainio (Davids, 56), Mido, Defoe. Varamenn: Cerny, YP Lee, Gardner.

DEILA
Fyrri fréttYfirlit: Hluti I
Næsta fréttLennon líklega ekki með