Fulham-Tottenham 1-1 (dapurt)

0
704

Ég ætla ekki að hafa mörg orð um þennan leik. Ég og sennilega allir aðrir stuðningsmenn Tottenham bíða eftir því að Jol og félagar finni lausn á því að spila gegn liðum sem spila kraftabolta. Því miður eru engin merki um það að það sé í sjónmáli. Það sem verra er, er að Jol virtist tiltölulega ánægður með liðið í gær. Hvernig hann kemst að þeirri niðurstöðu er mér hulin ráðgáta. Liðið var að leika illa og að nota ekki það að vera einum fleiri í hálftíma rúman er bara óafsakanlegt. Tvö nýleg dæmi höfum við þar sem Newcastle missti mann útaf gegn Birmingham og í gær missti Bolton mann útaf. Birmingham á útivelli og deild neðar vann 5-1. Middlesboro vann Bolton sem er í 5. sæti 5-1. Við nærri töpum. Það vantar stál á miðjuna eins og Davids var í fyrra. Það vantar líka að þeir sem nú eru í liðinu geri sér grein fyrir að útivöllur er alveg eins og heimavöllur og boltinn er líka eins ásamt því að það eru líka bara 11 í hinu liðinu alveg eins og á heimvelli. Að lokum allir stuningsmenn eru að öskra það sama í sjálfum sér, sama á hvaða velli það er.
En að leiknum. Defoe byrjaði frammi og Lee kom inn í bakvörðinn fyrir Ekotto. Gardner var í vörninni. Ghaly kom fyrir Lennon á hægri kandinn. Þá kom Tainio fyrir Zokora. Aðrar breytingar vöru ekki gerðar. Tainio fór svo meiddur útaf í fyrri hálfleik og Zokora tók stöðu hans. Robinson náði að  verja tvo eða þrjú hættuleg skot þó eitt þeirra hafi verið meira heppni en markvarsla. Við hinsvegar sáum enga sérstaka ástæðu til að vera ógna marki Fulham og það má segja að það var komið langt fram í seinni hálfleik þegar það var gert. Heiðar Helguson var svo rekinn útaf á 53. mínútu. Það breitti engu frekar en fyrri daginn hjá okkur. Lennon og Keane komu inn á en það hjálpi ekkert. Þeir ná svo sókn seint í leiknum og skot sem Dawson varðist með bringunni var dæmt víti. Það var erfitt að sjá hvort það var réttur dómur eða rangur. Við náum svo að klóra bakkann með marki frá Cimbonda alveg í lokinn.
Liðið: Robinson; Chimbonda, Dawson, Gardner, Lee; Ghaly (Lennon,
 60), Tainio (Zokora, 26), Malbranque; Defoe (Keane, 67), Berbatov.
Varamenn: – Cerny; Ekotto