Varnarmaðurinn Ricardo Rocha keyptur

0
615

Búið er að staðfesta að við höfum keypt Ricardo Rocha frá Benfica. Rocha er varnarmaður með ágæta reynslu og á hann án efa að koma með reynslu inn í vörnina sem hefur lekið of mikið að undanförnu. Rocha er 28 ára portúgali sem hefur eitthvað komið við sögu í landsliði Portúgala.