Sheffield United – Tottenham

0
667

Á morgun er næsti leikur hjá Tottenham og verða andstæðingar okkar lið Sheffield United og verður spilað á Bramall Lane í Sheffield og hefjast leikar kl. 15.00 að staðartíma og að íslenskum tíma.

Sheffield United eru nýliðar í deildinni og hafa verið í töluverðum vandræðum við botn deildarinnar í allan vetur, en hafa engu að síður náð nokkrum góðum úrslitum .. t.d. heimasigur gegn erkifjendum okkar í Arsenal.

Lið Sheffield United er þessa stundina í 16. sæti deildarinnar á meðan við sitjum í 11. sætinum. 6 stig skilja að liðin sem er ekki svo ýkja mikið. Þannig að það þarf ekki mikið til að Tottenham dragist niður í kjallarabaráttuna i deildinni. En einnig þarf ekki mikið til að Tottenham klifri upp töfluna þar sem það eru 7 stig í 5. sætið og við eigum leik til góða.

Lið Sheffield er með nákvæmlega 50 % árangur á heimavelli á tímabilinu, hafa unnið 4 , 5 jafntefli og 4 tapleikir .. og markatalan er 15 : 15 . Sheffield fær að meðaltali 1.3 stig á heimavelli í leik hverjum og meðal markaskor er 1.15:1.15 .

Tottenham er með mjög dræman árangur á útivelli á tímabilinu , unni 1 leik , 5 jafntefli og 6 tapleikir … og markatalan er 8 : 20. Tottenham fær að meðaltali .066 stig á útivelli í leik hverjum og meðal markakskor er 0.66 : 1.66

Samkvæmt þessu þá fer leikurinn 1:1 …. þó líklegra sé 1:0 fyrir Sheffield.

Markahæstir hjá Sheffield á þessu tímabili er Rob Hulse með 6 mörk, Danny Webber 3 mörk og svo koma nokkrir með 2 mörk. Þar á meðal er J.Stead sem kom til Sheffield núna í janúarglugganum og hefur byrjað vel hjá Sheffield.

Markahæstir hjá Tottenham á þessu tímabili er Defoe með 7 mörk, Berbatov með 6 mörk og svo koma 4 jafnir með 2 mörk.

Gangi okkar mönnum bara vel á morgun, og vonandi náum við 3. stigum í hús, því okkur veitir víst ekki af þeim.

Birgir