Það er uppselt í ferð klúbbsins á leik Tottenham og Arsenal 19 til 22. apríl. Möguleiki er að hafa samband við Express Ferðir og láta setja sig á biðlista ef einhver forföll verða. Þeir sem hafa bókað sig í ferðina fá sent bréf frá okkur í næstu viku með upplýsingum um ferðina og það sem í boði verður.






