Middlesbrough-Tottenham 2-3

0
645

Tottenham náði að sigra á Riverside í fyrsta skipti í 11 ár. Má það þakka Berbatov sem var frábær í leiknum og Robinson sem varði meistaralega á mikilvægum augnablikum í leiknum. Þá er hlutur Robbie Keane stór en hann gerði sitt þrettánda og fjórtánda mark í tólf leikjum. Bæði Keane og Berbatov eru nú komnir í tíu mörk í deild og 21 samanlagt í vetur.  Jol gerði tvær breytingar Steed kom inn fyrir Tainio sem er meiddur og Ghaly kom inn fyrir Lennon sem var hvíldur.
Tottenham var betra liðið í fyrri hálfleik og Keane kom Spurs yfir á 12. mínútu eftir frábæran undirbúning Berbatovs. Strax í byrjun seinni hálfleiks fengum við sókn og Ghaly sendi fyrir á Berbatov sem skaut viðstöðulaust í fjærhornuð vinstramegin við markmanninn. En þá gerðis það sem svo oft hefur gerst með Tottenham að við gáfum eftir og á 66. mínútu minnkaði Viduka muninn. Lennon kom inn á fyrir Ghaly á 71. mínútu og tólf mínútum síðar komst Lennon upp að endamörkum með boltann. Hann rendi honum út í teygin til Keane sem sneiddi hann í netið. Það verður að segja að þetta mark kom gegn gangi leiksins. Síðust mínúturnar voru svo spennandi því Boro menn héldu áfram að reyna að fá eitthvað út úr leiknum. Það er hægt að þakka Robinson að þeim Boro mönnum tókst ekki ætlunarverkið en þeir náðu þó að skora annað mark á 89. mínútu en lengra komust þeir ekki.
Liðið: Robinson; Chimbonda, Dawson, King, Rocha; Ghaly (Lennon, 71), Jenas, Zokora, Malbranque; Berbatov, Keane. VaramennCerny; Ifil; Huddlestone; Defoe
.