Varaliðsleikur
Varaliðið gerði jafntefli við varaliðið Chelsea á útivelli í gærkvöldi. Tottenham var manni færri í um 30 mínútur eftir að Delefski var rekinn útaf fyrir að stöðva sóknarmann. Emil var á tréverkinu allan tímann. Davis lék allan leikinn og ætti nú að vera kominn í form til að byrja leiki með aðalliðinu. Við vorum betra liðið í leiknum en brottreksturinn snéri leiknum án þess að það breytti einhverju um úrslitin.
Liðið: Cerny, Ifil, McKie, Bunjevcevic, Defendi, O’Donoghue, Dilevski, Davis (McKenna, 65), Yeates, Malcolm (O’Hara, 65), Limbersky. Varamenn: Eyre, Kyriacou, Hallfredsson. HJ






