Gareth Bale hefur skrifað undir samning við Tottenham. Þetta var tilkynnt seinnipartinn í dag. Hann er keyptur frá Southampton. Gareth er vinstri bakvörður. Hann er aðeins tæplega 18 ára en var þegar fastamaður hjá Southampton.
Hann lék 45 leiki fyrir þá og gerði 6 mörk. Hann hefur þegar leikið 6 leiki með landsliði Wales og gert tvö mörk í þeim. Hann varð yngsti leikmaðurinn til að leika með landsliði Wales þegar hann lék gegn Brasilíu í september 2006 en sá leikur fór fram á White Hart Lane. Við bjóðum hann velkominn í okkar raðir.






