Samningur Taarabt staðfestur og einn 17 ára í viðbót

0
559

Heldur hljótt hefur verið úr herbúðum Tottenham að undanförnu en nú hefur veerið tilkynnt það sem allir vissu svo sem að samningurinn við Taarabt er gengin í gildi. Fram að þessu var hann í láni en nú er hann semsagt genginn formlega í Tottenham.
Þá hefur verið tilkynnt að spænskur 17 ára vinstri bakvörður, Yuri Berchiche að nafni hefur verið keyptur frá Atletico Bilbao. Hann hefur spilað í 16 og 17 ára landsliðum Spánar og þykir einn besti ungi vinstri bakvörður á Spáni.