Tottenham spilaði á laugardag fyrsta æfingarleik sinn fyrir næstu leiktíð gegn Stevenage Borough og lauk þeim leik með sigri Tottenham 3-1. Mörk Tottenham gerðu þeir Keane, Bent og Taarabt.
Leikurinn markaði endalok samnings við Stevanage Borough um notkun varaliðsins á heimavelli þeirra sem okkar heimavelli, en liðin hafa árlega spilað undirbúningsleik sem hluta af þeim samningi. Martin Jol gat ekki stillt upp sínu allra sterkasta liði þar sem stór hluti leikmanna hefur ekki snúið til baka til æfinga eftir sumarfrí. Þeir leikmenn sem léku landsleiki eftir tímabilið mæta síðar til æfinga svo þeir fái álíka sumarfrí og hinir. En Martin Jol byrjaði með það sterkasta sem í boði var og lék Darren Bent m.a. sinn fyrsta leik fyrir Tottenham.
Fyrsta skot leiksins kom frá fyrrum Spursara sem gekk til liðs við Stevenage fyrr á þessu ári. Keane átti svo tvö góð skot eftir sendingar frá Ifil og Bent. Á 17.mínútu fékk Tottenham svo vítaspyrnu eftir að brotið var á Bent inni í teig. Keane fór á vítapunktinn og skoraði fyrsta mark Tottenham á undirbúningstímabilinu. Eftir þetta áttu Taarabt og Bent skot á markið og Keane átti skot úr aukaspyrnu en inn fór boltinn ekki. En það var svo á 43. mín að Ollie Allen, sonur Clive Allen, skoraði fyrir Stevenage og var staðan jöfn í hálfleik. Það tók Tottenham þó ekki nema 2 mínútur að endurheimta forystuna í seinni hálfleik en það var enginn annar en Darren Bent sem skoraði það mark, hans fyrsta mark fyrir Tottenham. Bent, Keane, Murphy og Malbranque áttu svo alllir möguleika á að auka forskotið en það var Taarabt sem kláraði leikinn en það var einnig hans fyrsta mark fyrir félagið. Lokastaða 3-1.
Ótakmarkaðar skiptingar voru leyfðar í þessum leik og skipti Stevenage um allt liðið í hálfleik en Tottenham gerði 6 skiptingar í leiknum og þegar flautað var til leiksloka voru aðeins þeir, Keane, Malbranque og Gardner inná af aðalliðinu. Taarabt átti góðan leik, spilaði stóran hluta leiksins í stöðunni rétt fyrir aftan sóknarmennina tvo en getgátur hafa verið uppi um að Jol muni hugsanlega spila eitthvað í vetur með Bent og Berbatov frammi og Keane fyrir aftan þá. Það verður hins vegar að koma í ljós en sú taktík var þó reynd í þessum leik. Einnig áttu Keane og Bent góðan leik og Malbranque stóð sig vel en varnarlínan átti oft í vandræðum í leiknum og þykir ekki traustvekjandi að fá á sig mark gegn neðrideildarliði sem var töluvert lakari í leiknum. Varnarlínan var þó öll skipuð leikmönnum sem eflaust verma bekkinn eitthvað í vetur ef ekki verður mikið um meiðsli.
Martin Jol var sáttur eftir leikinn og hafði á orði að þetta hafi verið tækifæri fyrir suma af yngri leikmönnunum til að sýna áhorfendum hvað í þeim býr sem er jákvætt skref. Þeir hafi lagt upp með sóknarbolta og hefðu jafnvel átt að skora meira í fyrri hálfleik. Þeir vildu vinna leikinn og héldu því áfram að spila sóknarbolta í seinni hálfleik. Sigurinn var okkar og liðið slapp við meiðsli og því ekkert nema jákvætt um þennan leik að segja. Þess má til gamans geta að Ollie Allen var ekki eina afkvæmi þjálfaraliðs Tottenham sem tók þátt í leiknum því á 87.mínútu skipti Chris Hughton syni sínum, Cian Hughton, inná í stað Daniels.
Liðið: Cerny, Ifil (Riley, 87), Daniels (Hughton, 87), Rocha (Mills, 62), Gardner, Murphy (Livermore, 80), Malbranque, O’Hara (Maghoma, 72), Taarabt, Keane, Bent (Barcham, 67). Varamenn: Forecast.






