Rétt áðan lauk síðast leik Tottenham í æfingarferð þeirra í S-Afríku. Leikurinn var úrslitaleikur og voru mótherjarnir Orlando Pirates en þá unnum við á þriðjudag 1-2. Núna urðu lokatölur 0-3 og voru það Berbatov með eitt og Bent með tvö, sem gerðu mörkin. Tottenham hampaði því bikar eins og myndin ber með sér.
Tottenham tætti sjóræningjanna í sig eins og Ástríkur og Steinríkur gerðu hér áður fyrr í frægum ævintýrum þeirra félaga. Leikurinn róaðist svo í seinni hálfleik og ekki voru fleiri mörk skoruð.
Liðið: Robinson, Chimbonda, Stalteri, Dawson, Rocha, Malbranque (Maghoma, 83), Zokora (Jenas, 46), Huddlestone (Keane, 57), Taarabt (Routledge, 46), Bent (Defoe, 46), Berbatov (Tainio, 72). Varamenn: Cerny, Kaboul, O’Hara, Daniels.






