Fyrsta ferð Tottenham klúbbsins!

0
693

Nú er komið á hreint að fyrsti leikur Tottenham í evrópukeppninni er á White Hart Lane gegn Getafe þann 25. október. Það þýðir að farið verður á tvo leiki í ferðinni, þann fyrri á fimmtudagskvöldinu og þann síðari á sunnudeginum. Einungis örfá sæti eru laus í ferðina og því um að gera að hafa hraðann á ef fólk ætlar að skella sér. Lokadagur til að panta ferðina er þriðjudagurinn 16.október.

Þá er komið að fyrstu ferð vetrarins og verður farið á leik Tottenham gegn Blackburn þann 28.október (er skráður 27. en verður nánast örugglega færður vegna evrópuleikja). Einnig verður farið á evrópuleik í sömu ferð ef liðið spilar heimaleik en það skýrist síðar.

Flogið verður út fimmtudaginn 25.október frá Leifsstöð kl.7:15. Lent verður í London um þremur tímum síðar og rúta flytur hópinn á Holiday Inn hótelið í Bloomsbury sem er 3+ stjörnu hótel við lestarstöðina Russel Square. Síðar þann dag verður farið á fyrsta leik Tottenham í riðlakeppni UEFA cup á þessu ári þegar liðið tekur á móti Getafe á White Hart Lane. Á sunnudeginum verður farið á Blackburn leikinn. Flogið heim kl.11:30 á mánudeginum en rúta sækir hópinn á hótelið og keyrir honum út á flugvöll.

Verð á hvern einstakling sem er meðlimur í Tottenham klúbbnum er kr.72.900 og innifalið í því er flug, gisting í fjórar nætur, rúta til og frá flugvelli og miðar á tvo leiki. Gjald fyrir þá sem ekki eru meðlimir í klúbbnum er 74.900 kr.

Einungis eru 30 sæti í boði og því um að gera að bóka sem fyrst því að fyrstur kemur, fyrstur fær.

Til að bóka sæti þarf að hafa samband við Ágúst Valsson hjá Express ferðum í síma 590 0100 eða í pósti á netfangið agust@icelandexpress.is. Í póstinum þurfa að koma fram helstu upplýsingar, s.s. nafn, kennitala og símanúmer. Ef greiða á með kreditkorti er æskilegra að bóka gegnum síma.