Í annað skipti á innan við viku var skorað mark í uppbótartíma í leik með Tottenham, en í þetta skiptið voru það ekki Spurs sem skoruðu markið.
Jöfnunarmark Fernando Torres var afar súrt eftir að leikmenn Spurs höfðu barist betur en þeir hafa gert hingað til á þessu leiktímabili. Frammistaða alls liðsins var til fyrirmyndar stóran hluta leiksins, en það verður að teljast afrek miðað við gengi liðsins og neikvæða umfjöllun síðastliðnar vikur.
Jol stillti upp klassísku útivallarmiðjunni með Jenas, Zokora og Taino alla í byrjunarliðinu ásamt Bale sem lék þó mun dýpra í þessum leik en undanfarið. Undir venjulegum kringumstæðum hefðu flestir tengdir Tottenham sætt sig við jafntefli gegn ósigruðu liði Liverpool, en eftir á að hyggja er raunin önnur.
Liverpool komust yfir í fyrri hálfleik þegar aukaspyrna Gerrard var varin út í teiginn af Paul Robinson, sem átti enn einn sorgardaginn í markinu. Eftir markið var lítið um marktækiæri en Spurs tókst að jafna rétt fyrir hlé.
Löng spyrna fram völlin var skölluð áfram af Berbatov á Keane, sem setti boltann snyrtilega í markið framhjá markverði Liverpool.
Staðan var því 1-1 í hálfleik og óhætt að segja að Spurs hafi ekki endilega verðskuldað þá stöðu. En upphaf síðari hálfleiksins boðaði allt annan leik frá þeim hvítklæddu.
Keane kom Spurs yfir á 46. mínútu með nákvæmlega sama hætti og hann hafði gert skömmu áður. Aftur var það Berbatov sem lagði markið upp. Eftir markið fór að sjást til smá sjálfstraust hjá leikmönnunum og hafði það gríðarleg áhrif á sóknarleikinn, en fyrst og fremst fóru menn að berjast.
Allt í einu var eins og menn vildu deyja fyrir búninginn, ekki eitthvað sem virðist gerast oft þessa dagana hjá Spurs. Síðustu 10 mínútur leiksins voru, eins og búast mátti við, erfiðar fyrir Spurs. Pressan var mikil en það bauð líka upp á skyndisóknir.
Spurs fengu engin dauðafæri undir lok leiksins en þegar Pepe Reina kom langt út úr markinu á einum tímapunkti og missti af boltanum héldu margir að Chimbonda myndi skora, en flautan gall. Bale átti að hafa brotið af sér. Ekki er hægt að segja mikið um dómarann nema það að hann hefi staðið sig skelfilega, hvorugu liðinu til hjálpar.
Jöfnunarmarkið kom á 92. mínútu en 3 mínútum hafði verið bætt við leiktímann. Torres stökk einfaldlega hærra en Chimbonda og boltinn fór milli Robinson og nærstangarinnar.
Þessi leikur markaði eitt skref áfram en tvö aftur á bak fyrir Martin Jol og hans menn. Hins vegar boðar frammistaða liðsins góða hluti.
Með því að berjast eins og þeir gerðu á Anfield, mun endurkoman vera hafin; ef ekki munu spurningarnar verða fleiri og fleiri.
Lið Spurs: Robinson 3, Chimbonda 6, Dawson 7, Kaboul 7, Lee 6, Tainio 6 (Malbranque 75), Jenas 6, Zokora 7, Bale 7, Keane 8, Berbatov 7. Ónotaðir: Cerny, Defoe, Huddlestone og Gardner.






