Tottenham lagði Blackpool í 16 liða úrslitum Carling Cup 2-0 á White Hart Lane. Þetta var fysti leikur liðsins undir stjórn Ramos. Mörk Tottenham skoruðu þeir Robbie Keane og Pascal Chimbonda í sitthvorum hálfleiknum.
Fyrsta verkefni Ramos sem þjálfari Tottenham var að mæta Blackpool í 16 liða úrslitum Carling Cup á White Hart Lane. Hann tefldi fram ekki ólíku liði en því sem spilaði gegn Blackburn en gerði þó tvær breytingar á byrjunarliðinu. Robinson kom á ný í markið og varnarlínuna skipuðu þeir Chimbonda, Dawson, Kaboul og Lee. Á miðjunni spiluðu þeir Lennon, Jenas, Zokora og Malbranque og frammi voru þeir Keane og Berbatov. Það sem vakti helsta athygli var varamannabekkurinn en þar var hvergi að finna varnarmann. Cerny var varamarkmaður en aðrir varamenn voru þeir Tainio, Boateng, Bent og Defoe.
Leikmenn Blackpool komu ákveðnir til leiks og voru staðráðnir í að láta Tottenham ekki vaða yfir sig. Strax í upphafi leiks áttu þeir hættulegt skot sem Kaboul kom aftur fyrir og Robinson þurfti aldeilis að leggja sig fram við að verjast horninu sem og öðru færi stuttu seinna. En fljótlega fór leyfturhraði Lennon að hafa áhrif á Blackpool og áttu þeir í fullu fangi með að halda aftur af honum. Keane átti fyrsta færi Tottenham en náði ekki að nýta sér það. Hins vegar dróg til tíðinda á 17.mín og voru það Berbatov og Keane sem stóðu að því. Robinson kom boltanum fram völlinn og Berbatov náði að skalla hann í áttina að Keane sem vippaði boltanum yfir markvörð Blackpool. Varð hann þar með fyrsti leikmaðurinn til að skora undir stjórn Ramos en hann lék einnig sama leik í fyrsta leik Martin Jol. Eitthvað var um hálffæri það sem eftir var hálfleiksins en staðan í hálfleik var þó 1-0.
Strax á fyrstu mínútum seinni hálfleiks hefðu leikmenn Blackpool átt að skora en þversláin kom í veg fyrir það. Þá var komið að Keane aftur og fékk hann svipað færi og í markinu en í þetta skiptið vippaði hann boltanum yfir markið. Robinson átti svo stórglæsilega markvörslu stuttu síðar eftir skot frá Taylor Fletcher. Kaboul var ekki að spila sinn besta leik í Tottenham skyrtunni og var skipt út af á 56.mín og inná kom Tainio. Chimbonda færði sig þá í miðvarðarstöðuna og Tainio fór í hægri bakvörðinn. Stuttu síðar skoraði Tottenham annað mark sitt. Tottenham fékk hornspyrnu sem Malbranque tók, gaf fyrir á fjærstöngina og þar skallaði Chimbonda boltann framhjá markverði Blackpool. Staðan orðin 2-0. Ramos ákvað að gera fleiri breytingar á liðinu. Hann tók Keane út af á 60.mín og inná kom Jermain Defoe. Hann var ekki lengi að láta vita af sér og átti þrumuskot af löngu færi sem markvörður Blackpool varði vel. Síðasta skipting Tottenham kom svo á 72.mín þegar Bent kom inná fyrir Berbatov. Síðasta færi leiksins átti svo Defoe en það var varið glæsilega og lokastaðan því 2-0. Tottenham er því komið áfram í 8-liða úrslit Carling Cup en drátturinn í næstu umferð fer fram á laugardaginn.
Lið Spurs: Robinson, Chimbonda, Dawson, Kaboul (Tainio 56), Lee, Lennon, Jenas, Zokora, Malbranque, Keane (Defoe 60), Berbatov (72). Ónotaðir varamenn: Cerny, Boateng.






