Sjöunda sæti er Evrópusæti

0
698

Nú er ljóst að sjöunda sæti í deild gefur þátttökurétt í UEFA keppninni á næstu leiktíð. Í því sæti sitjum við einmitt núna. Þetta varð ljóst eftir að Man. Utd. vann Newcastle í undanúrslitum FA bikarsins og tryggði þar með sæti í úrslitunum gegn Arsenal sem vann sinn leik í gær. Þar sem bæði þessi lið eru þegar örugg með sæti í Evrópukeppni þá flyst FA sætið á deildina.

Áður hafði sjötta sætið orðið Evrópusæti eftir að Chelsea varð deildarbikarmeistari. Þeir eru öryggir í Meistaradeildina og því fór það sæti á deildina. Nú verða okkar menn bara að halda þessu sæti.
Það er þó rétt að geta þess að eitt gæti breytt þessu. Það er ef Liverpool vinnur Meistaradeildina og endar neðar en í sjöunda sæti í deildinni. Þá þarf FA að ákveða hvaða lið fær fjórða Meistaradeildarsætið, Liverpool eða liðið sem endar í fjórða sæti í deild. Komi þessi staða upp og FA velji Liverpool þá verða sæti 4, 5 og 6 UEFA sæti.
Staðan núna er sú að Liverpool er sex stigum á undan Middlesbrough í áttunda sæti þegar fimm umferðir eru eftir og mætir Chelsea í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. HJ

DEILA
Fyrri fréttFyrsta mark Emils
Næsta fréttEmil lék allan leikinn