Tottenham lagði lið Hapoel Tel Aviv að velli í Ísrael með tveimur mörkum gegn engu og var þetta annar sigur liðisins undir stjórn Ramos og fyrsti sigur liðsins í riðlakeppni UEFA cup á þessu ári. Mörk Tottenham skoruðu þeir Robbie Keane og Dimitar Berbatov.
Juande Ramos gerði nokkrar breytingar á liðinu líkt og hann hefur gert hingað til en hann þarf að vega og meta leikmenn enda nýkominn til liðsins. Í marki var Robinson, varnarlína var skipuð þeim Stalteri í hægri bakverði, Chimbonda í miðverði með Dawson og Lee í vinstri bakverði. Á miðjunni voru þeir Lennon, Jenas, Zokora og Malbranque og í framlínuna mættu á ný þeir Keane og Berbatov.
Leikurinn byrjaði afar rólega og bæði lið virtust taka sinn tíma að smella í gírinn. Það var fyrst á 8.mín að færi kom í leikinn og var það af hálfu Hapoel manna en leikmaður þess skaut rétt yfir markið. Leikurinn var svo fullrólegur þar til á 26. mín. Keane gaf þá sendingu út á vinstri kantinn á Malbranque sem þaut áfram með boltann, gaf svo aftur á Keane sem skaut þrumuskoti á markið og inn fór boltinn. Staðan orðin 1-0 fyrir Tottenham og var þetta 10 mark Keane á þessu tímabili og það 25 í síðustu 33 leikjum. Einungis fjórum mínútum síðar var Malbranque aftur á ferðinni. Berbatov átti skot á markið sem var varið en boltinn barst út til vinstri og þar var Malbranque mættur, gaf fyrir markið á Berbatov sem skallaði boltann í netið. Loksins mark hjá Berbatov og var honum eflaust mjög létt en þetta var hans þriðja mark á tímabilinu. Við þessi mörk náði Tottenham algjörum tökum á leiknum og hefðu getað bætt við amk tveimur mörkum fyrir lok fyrri hálfleiks, en Keane átti færi sem var varið og Chimbonda skallaði rétt yfir markið eftir aukaspyrnu frá Jenas. Staðan í hálfleik var því 2-0.
Í upphafi seinni hálfleiks áttu Hapoel menn færi og áttu möguleika á að komast inn í leikinn en Robinson var með á nótunum og inn fór boltinn ekki. Á 50.mín varð útlitið enn svartara fyrir heimamenn en þá fékk leikmaður þeirra, Shish að nafni, sitt annað gula spjald í leiknum, bæði voru fyrir brot á Lennon, og var honum því vísað af velli. Heimamenn voru því manni færri og tveimur mörkum undir. Fljótlega kom svo skipting hjá Tottenham en Malbranque fór af velli og inná kom Defoe. Keane átti svo eitt færi áður en hann og Jenas fóru af velli og Boateng og Bent komu inná. Eina hættulega færið sem kom það sem eftir lifði leiks var frá Darren Bent en hann hafði leikið framhjá markverði Hapoel og skaut að marki en boltinn fór í stöngina.
Það mikilvægasta við leik kvöldsins var að sigur vannst sem mun án efa auka sjálfstraust leikmanna sem og að liðið hélt hreinu. Hins vegar þarf liðið að gera mun betur því það á eftir að mæta mun sterkari liðum á næstu 7 mánuðum og þá þarf meira til en frammistöðu líkt og sást í þessum leik.
Lið Tottenham: Robinson, Stalteri, Chimbonda, Dawson, Lee, Lennon, Jenas (Boateng 68), Zokora, Malbranque (Defoe 56), Keane (Bent 68), Berbatov.
Ónotaðir varamenn: Cerny, Tainio, Huddlestone, Kaboul.






