Markaveisla á White Hart Lane

0
587

Tottenham lagði lið Wigan á White Hart Lane í bráðskemmtilegum leik sem bauð upp á góða spilamennsku og markaveislu. Leiknum lauk með 4-0 sigri Tottenham og voru það þeir Jermaine Jenas (2), Aaron Lennon og Darren Bent sem skoruðu mörkin. Var þetta þriðji sigur Tottenham í fjórum leikjum undir stjórn Ramos og þriðji leikurinn sem liðið heldur hreinu. Liðið er því enn taplaust undir stjórn Ramos og vonandi er það komið til að vera.

Ramos gerði enn á ný breytingar á liðinu. Robinson var þó í marki sem fyrr, Chimbonda fór aftur í hægri bakvörðinn, Dawson og Kaboul mynduðu miðvarðarparið og Lee var í vinstri bakverði. Á miðjunni spiluðu þeir Lennon, Jenas, Zokora og Malbranque og frammi þeir Keane og Berbatov.

Strax frá fyrstu mínútu tóku leikmenn Tottenham völdin og átti Lennon hættulegt skot að marki og í kjölfarið fylgdu nokkur færi sem leikmenn Wigan náðu með ólíkindum að verja. En á 13. mínútu gátu leikmenn Wigan lítið gert. Keane lék frábærlega á Granqvist við endalínu Wigan marksins og gaf boltann á Jenas sem gerði vel og kom boltanum í netið. Leikmenn Tottenham fögnuðu á óvenjulegan hátt með því að hlaupa að endalínunni og þykjast vera að vagga barni en það tengist því að eiginkona Jenas fæddi stúlkubarn í nýliðinn viku. Staðan því orðin 1-0. Á eftir fylgdu færi frá Keane og Dawson en það var Jenas á ný sem jók forystuna á 25.mínútu. Berbatov gaf sendingu fyrir markið og Jenas átti ekki í vandræðum með að koma boltanum í netið. Staðan orðin 2-0. Berbatov átti stórleik þennan dag og sýndi hæfileika sýna enn á ný í þriðja marki Tottenham. Robinson gaf langa sendingu fram sem Berbatov tók svo glæsilega við, gaf boltann á Lennon sem ákvað að skjóta að marki langt út fyrir teig og þrumaði boltanum framhjá Kirkland. Staðan orðin 3-0 fyrir Tottenham og leikmenn að spila glimrandi fínan bolta. Rétt fyrir hálfleik átti  Jenas möguleika á að ná þrennunni eftir góðan leik milli Lennon og Berbatov en þessir þrír leikmenn áttu stórleik þennan dag. Boltinn barst svo til Jenas sem skaut að marki en boltinn endaði í hliðarnetinu. Eitthvað virðast þrennurnar vera Tottenham leikmönnum erfiðar en síðasta þrenna leit dagsins ljós á þarsíðasta tímabili.

Seinni hálfleikur hófst á svipaðan hátt og sá fyrri, algjör einstefna af hálfu Tottenham. Malbranque fór snemma af velli þar sem hann varð fyrir smá meiðslum og inná í staðinn kom Tainio. Wigan reyndu hvað þeir gátu að breyta leik sínum t.d með því að setja inná fyrrum leikmann Tottenham, Michael Brown. En færin héldu áfram að koma hjá Tottenham og Jenas kom boltanum í netið í þriðja sinn en því miður var markið dæmt af vegna rangstöðu. Þá var komið að næstu skiptingu hjá Tottenham en Keane fór af velli og inná kom Darren Bent. Ekki leið á löngu þar til Tottenham bætti við marki. Berbatov var enn á ný hluti af markinu en hann gaf góða sendingu á Jenas sem gaf sendingu inní teig á Darren Bent. Bent skaut svo að marki framhjá Kirkland í stöngina og inn. Staðan orðin 4-0. Tottenham var svo óheppið að bæta ekki fleiri mörkum við en Zokora átti óvænt hættulegt skot að marki sem Kirkland varði og bæði Berbatov og Kaboul áttu skot í þverslánna. En ekki litu fleiri mörk dagsins ljós og lokastaðan því 4-0. Greinileg batamerki eru á liðinu og verður spennandi að sjá hvort leikmenn halda áfram á sömu braut í næstu leikjum.

Lið Spurs: Robinson, Chimbonda, Dawson, Kaboul, Lee, Lennon (Defoe), Jenas, Zokora, Malbranque (Tainio), Keane (Bent), Berbatov.

Ónotaðir varamenn: Cerny, Archibald-Henville.

DEILA
Fyrri fréttSigur í Ísrael
Næsta fréttMiðapantanir